HAM
Hugræn atferlismeðferð HAM
Hugræn atferlismeðferð HAM (cognitive behavioral treatment) er notuð við margvíslegum andlegum og líkamlegum heilsuvanda en þó er hún sérstaklega notuð í baráttunni við þunglyndi og kvíða. HAM er sálfræði meðferð sem gengur út á það að hugsun-, hegðun- og líðan manns séu tengd og hafi áhrif hvort á annað.
Hvernig fer HAM fram
Hugræn atferlismeðferð er sálfræðimeðferð sem fer fram í fyrirfram ákveðinn tíma þar sem gert er rá fyrir 10 til 20 viðtalstímum. Hegðun og hugsun skjólstæðings er kortlögð og markmiðið er að hann nái að hafa stjórn á hugsunum sínum með skipulögðum hætti og breita þeim til hins betra og bæta þar með líðan sína. Honum er kennt að auka daglega virkni stig af stigi og meta þær hugsanir sem rífa hann niður. Með þessu móti er honum kennt að takast á við vanlíðan og mótlæti daglegs lífs.
Virkni hópmeðferð er talin jafngóð og ef ekki betri en í einstaklingsmeðferð og vegna kostnaðar er það það form meðferðar sem oftast er valið.
Árangur HAM
Rannsóknir hafa sýnt að HAM er árangursrík meðferð og niðurstöður segja að árangurinn helst oft lengi eftir að meðferð lýkur. Samanborið við lyfjameðferð er hún jafn árangursrík eða áhrifameiri.
Heimildir
http://www.laeknabladid.is/tolublod/2011/11/nr/4367
http://www.ham.reykjalundur.is/medferdarhandbok/formali/