Kvíði
Hvað er kvíði
Kvíði er geðröskun, en talað er um eðlilegann kvíða sem viðbrag sem hélt lífi í mannfólkinu þegar okkur var ógnað af ytri aðstæðum. Í læknisfræðilegu tali er hann talinn röskun þegar ástand er viðvarandi en ekki tilfallandi vanlíðan. Kvíði er viðbrögð líkamans við aðstæðum sem við teljum okkur ekki geta átt við og höfum ekki stjórn á. Til eru um ein 10 afbrigði af honum sem dæmi má nefna ofsakvíða, félagsfælni, víðáttufælni, áfallaröskun og áráttu og þráhyggju kvíða.
Einkenni
Kvíði er eitthvað sem allir hafa fundið fyrir en hann er missterkur. Einkennin kvíða eru einstaklingsbundin og getur verið frá því að vera vægar breyting á líkamssatarfsemi upp í það að vera aðstæður þar sem einstaklingurinn ræður ekki við daglegar athafnir. Helstu einkenni kvíða eru sem dæmi vöðvaspenna, sviti, skjálfi, hiti og kuldi, hröð öndun, niðurgangur, höfuðverkur, svimi og óreglulegur eða hraður hjartsláttur.
Orsakir og eðli
Kvíði er eðlileg tilfinning sem við finnum öll fyrir þegar hætta steðjar að okkur en þegar hann verður óeðlilegur og ofsafengin orsakast hann af andlegri og líkamlegri röskun en hefur engan tilgang. Hann er eðlilegt og tilfinningalegt viðbrag líkamans til að bregðast við aðstæðum og hjálpa okkur að takast á við erfið verkefni. Megin orsök kvíða eru ótta hugsanir og þegar við festumst í þessum hugsunum og köfum dýpra yfirtaka þær líf okkar og verða að „panic“ eða ofsa hræðslu. Þegar við ölum endur tekið á þessum tilfinningum fara þær að framkalla kvíða og hvort sem við reynum að forðast þær eða eltst við þær ýta þessar hugsanir undir kvíða okkar. Hann er oftast fylgifiskur þunglyndis.
Meðferð
Meðferðarúrræði fara eftir hvers eðlis kvíðinn er en rannsóknir hafa sýnt að bestu meðferðir séu sálfræðimeðferð –hugræn atferlismeðferð (HAM) virki vel. Síðan er í boði lyfjameðferð og einnig kemur til greina sjálfshjálp sem byggir á lesefni um HAM.
Heimildir
http://www.doktor.is/
http://www.doktor.is/component/content/article/331-kviei.html
http://www.medferd.is/index.php?categoryid=11&p2_articleid=14
http://www.persona.is/index.php?action=articles&method=display&aid=10&pid=11
http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=1615
http://www.gedhjalp.is/?c=webpage&id=33&lid=31&pid=12&option=links